Sunday, July 31, 2016

Sunnudagur 31. júlí 2016

Sólskin, 17°C og N3 í dag. Við fórum á Mógilsá að vökva, en svo í Hafnargerði síðdegis. Þar þurfti líka að vökva allt hjá okkur bæði í pottum og kerjum og mestur tíminn fór í það.
Tók samt myndir af skjólgirðingunum sem við settum upp í síðustu viku.

Þessi girðing er viðbót norðan við rifsið. Nú loksins eru körfuvíðir og viðja farin að vaxa í beðinu ofan við.
Þessi mynd er úr NA horni skjólbeltisins. Þar eru aspirnar skemmdar eftir vetrarstorma og nú á að láta girðinguna vera uppi allan næsta vetur, enda er búið að styrkja hana. 

Risastór sólber.
Uppáhaldið, eina eldliljan.

Hlynur sem er í sambýli með garðabrúðu.

Og svo fína vinnuborðið, sem nú er tilbúið til noktunar.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive