Halldór hefur unnið í gróðurhúsinu alla vikuna, nú er hann búinn að styrkja kantana austanmegin og festa þá betur.
Ég skipti helmingnum af rabbarbaranum og færði hluta til, bjó líka til nýtt beð fyrir rabbarbara í beði 1, ofan við sólberin nýju.
Í síðustu viku klippti ég ofan af öllum jarðarberjunum og snyrti þau. Sædís fékk græðlingana, ég tók bara það sem þarf í einn nýjan karm. Alls pottuðum við hjá Sædísi í 55 bakka x28 = 1540 plöntur. Ég fékk hjá henni 3 bakka til að byrja með.
Nú lítur beðið svona út. Tilbúið að loka þegar fer að kólna. Ég er ekki viss um að það hefði verið hægt að hemja plönturnar án þess að hafa ræktunardúkinn.
![]() |
| Blómstrandi bergreynir |
![]() |
| Sitkaölurinn við gáminn, myndin er tekin út um bílgluggann. |
![]() |
| Regnfang og blæösp |
![]() |
| Af holtinu, allt á uppleið. |
Allur gróður er yndislega fallegur og nú er á mörgum stöðum eru trén að ná upp í 2 m hæð.





No comments:
Post a Comment