3°C, rigning á köflum. það hefur verið fremur hlýtt í veðri í vetur, frost fáeina daga, en aldrei mjög mikið, og fljótt hefur hlýnað aftur. Nokkrir stormar, en ekkert hefur orðið að í gróðurhúsinu. Nokkrar skjólgirðingar hafa farið, þær eru að verða gamlar.
Sáði tómötum og maís (Sweet corn) í gróðurhúsinu og fór með heim í stofugluggann. Keypti í vikunni stóran balla af sáðmold. Færði ker inn í húsið, þar á að sá gulrótum fljótlega. Það eru komnar 3 vikur (13. jan) frá því að ég setti sæta kartöflu (lífræn úr Frú Laugu) í spírun, örlitlar rætur eru farnar að sjást, gengur aðeins hraðar en með kartöflurnar sem ég fékk í Bónus í fyrra.
Sáði að lokum nokkrum reyniberjum, bergreyni og úlfareyni. Fræin voru í boxi í hvíta skúrnum og aðeins farin að mygla, vonandi sleppa fræin. Setti þau í einn bakka og plastræmu á milli. Gler yfir og bakkinn stendur á gólfinu í gróðurhúsinu ásamt einhverjum sáningum frá því í fyrra.
No comments:
Post a Comment