Sunday, February 19, 2017

Sunnudagur 19. febrúar 2017

Fórum í Hafnargerði í fínu veðri, hæg A átt og 4°C.
Halldór er búinn að smíða nýjan plöntustaf úr þeim gamla, þessi er sérhannaður til að stinga græðlingum í grasgefið land.
Í staðinn fyrir hólfið sem bakkaplönturnar pössuðu í er kominn vírstautur sem er um 25 cm langur. Við fórum upp á NV stykkið og tókum 100 græðlinga af jörvavíði sem hefur staðið sig vel þar, tókum líka 20 af sjálfsánum runna, líklegast viðjublendingi. Þetta gekk fljótt og vel fyrir sig og auðveldar þessa vinnu mjög mikið. Nú eigum við líka mikið stiklingaefni af mörgum tegundum og vitum hvað gengur vel. Jörvavíðirinn er að gera það gott og það næst mikið af græðlingum af ungum plöntum.
 Tók 30 græðlinga af keisara og setti í fp 15 bakka, ætla með þá á Mógilsá og fylla þessa 7 bakka sem ég á.
Á Mógilsá pottaði ég dalíurnar, það verður spennandi að sjá hvernig þær haga sér í sumar. Það voru aðeins þessar rauðu sem fjölguðu sér mikið. 
 Í gróðurhúsinu eru nokkrar tegundir í sáningu, m.a. eldliljur sem Lars gaf okkur.  Ekkert af því er farið að spíra, ekki heldur radísur og gulrætur.

En alltaf er logn og blíða inni. Í dag skein sól í svolitla stund.


 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive