Í dag var þokkalegt veður en í gær gekk óveður yfir allt landið. Hviður fóru yfir 53 m. Við fórum að líta eftir í dag og sáum að gróðurhúsið hafði orðið fyrir talsverðum skemmdum. Plastið var víða beyglað og það tókst aðeins að rétta það að hluta. Þegar betur var að gáð var einn langbitinn brotinn og 5 bogar voru beyglaðir. Hurðin var skökk, svo lyfta þurfti henni með kúbeini til að geta opnað. Plastið hafði brotnað á tveim stöðum, alveg við sitt hvor gaflinn.
Halldór spengdi brotnu spýtuna og setti aukaskrúfur á plasið þar sem að var brotið.







No comments:
Post a Comment