Sunday, February 5, 2017

Sunnudagur 5. febrúar 2017

Frábært veður í dag, 6°C og hæg A átt, sól með köflum.
Við sóttum smávegis af skít og settum í karið sem komið var inn í gróðuhús. Fylltum það af mold og sáðum gulrótum. Ef allt gengur upp eigum við að geta fengið gulrætur í lok júní. Sáði nokkrum radísum með.
Það er mjög óvenjulegt að moldin var ófrosin og auðvelt að moka henni á milli. Við tókum mold úr kerjum 9 og 10, en þar voru kartöflur í fyrra. Í moldinni reyndist vera heilmikið af kartöflum frá því í fyrra, heillegar og virtust ekki vera með neinn svepp. Við tókum slatta og gróðursettum í ker 13, en þar voru gulrætur, sem uxu ekki vel í fyrra. Leyfum þessu að vaxa "villtu" í sumar.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive