Sumardagurinn fyrsti heilsaði með hagléljum fyrri hluta dags, en þegar leið á daginn stytti upp að mestu og sólar naut um tíma.
Við vorum lengi í Hafnargerði og vorum að vinna í græðlingunum. Stungum niður yfir 200 aspargræðlingum. Efniviðurinn er úr skjólbeltinu okkar. Ég pottaði bergreyni, um 20 plöntur af eigin fræi og sáði birki, fræ af stóra fallega birkinu í ruðningnum.Þá klippti ég til viðjugræðlinga, þá tók ég af viðjunni við Þórðargötu, en þá var búið að saga það niður, svo erfitt var að velja. Þetta urðu samt nokkur hundruð græðlingar sem eru tilbúnir til að stinga.
No comments:
Post a Comment