Saturday, April 22, 2017

Laugardagur 22. apríl 2017

Fínt veður, S3, 4°C. Stillt en svalt. Fínt á meðan sólin skein. Við fórum snemma af stað og afköstuðum heilmiklu.
Við sóttum skít í eina kerru. Hann fór í 5 ker, 2 með gulrótum og 2 með kartöflum. Það er nokkuð snemmt fyrir kartöflurnar, en þær voru með svo löngum spírum í ísskápnum að okkur þótti eins gott að setja hluta af þeim niður. Þetta er 'Hárekur', það eina sem við eigum eftir af útsæðinu sem við höfðum safnað að okkur. Í þessi 2 ker fóru 2x20 kartöflur. Til að halda hitanum inni settum við svart plast undir akryldúkinn og svo vonum við það besta. Við settum niður eina 200 græðlinga, aðallega viðju og svolítið af brekkuvíði. Við urðum að klippa af brekkuvíðinum því hann var farinn að rekast í grenið. Ég notaði græðlingana og setti í bakka. Svo tók ég jörvavíði í 3 bakka og fór með þá að Mógilsá. Þar er keisarinn af lifna við og dalíurnar líka.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive