Tuesday, April 18, 2017

Þriðjudagur 18. apríl 2017

Þokkalegt veður eftir óveðrið í gær, 6°C og S 7.  Í gær fór vindur yfir 52m/sek í hviðum.
Girðingar fóru illa í rokinu, en húsið skemmdist ekki meira.
Brotin girðin austan við vinnusvæði.






Við löguðum nokkrar girðingar, en nú er áhersla á ræktun. Við sáðum hvítlauksútsæðinu í 4 kassa og settum garðahlyninn í stóran pott. Hann er farinn að opna laufið svo hann fær að vera inni.
Grenið utan við girðinguna sést vel upp úr sinunni.
Þá kláraði ég græðlingana af loðvíðinum frá Borg, þetta urðu 25 x fp40 bakkar. Þeir verða úti í sumar, loðvíðir er oft lengi að komast af stað, en í haust eða næsta vor fara þeir allir upp á sléttuna. Ég sáði trjáfræi frá Trjáklúbbnum, Sambucus canadensis (ameríkuyllir), og Tilia americana. 1/2 bakki af hvoru. Halldór klippti græðlinga af öspunum, þeir verða settir niður á morgun, ásamt nokkrum greinum af ýmsum víði sem brotnað hafa í vetur, undan snjó, eða í storminum núna.

Svo blönduðum við mold í steypuhrærivélinni. Talsvert mikill hávaði, en meðan vélin snérist klippti ég græðlinga.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive