Sunday, April 23, 2017

Sunnudagur 23. apríl 2017

Fínt veður, en kalt. NA5 og 2°C. Sól með köflum og nánast logn í HG.
Við héldum áfram með græðlingana á bakkanum neðan við lækinn. Þar settum við 350 græðlinga, mest viðju, svo hreggstaðavíði og minna af jörvaavíði. Þá klipptum við jörvavíði í NV stykkinu og stungum í kringum móðurplönturnar. Jörvavíðirinn er það eina sem virkilega stendur sig þarna, 2ja ára plöntur gefa af sér góða græðlinga.
Gulrætur, eldliljur, jarðarber, mynta.

Gamli hvítlaukurinn

Nýji hvítlaukurinn, ekki farinn að spíra.

Sjálfsmynd við reynitré



Allt að gerast.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive