Friday, November 10, 2017

Föstudagur 10. nóvember 2017

Hæg N -átt, -8°C.
Snjóföl á jörðu og talsvert frost sem hefur nú staðið í nokkra daga.
Um síðustu helgi skall á óveður, við náðum að ganga frá ýmsu þegar við sáum veðurspána, en veðrið varð verra en við áttum von á. Vindur fór í um 65 m/sek í hviðum og veginum undir Hafnarfjalli var lokað um tíma.
Gróðurhúsið slapp, en það er vegna skjólveggsins, hann gaf svolítið eftir, hallar undan vindi.
Eitt lok fauk í burtu, þrátt fyrir að það væri undir neti, það var ekki nógu vel fest að sunnanverðu.
Tók þessa mynd úr bílnum þegar við vorum á heimleið í dag, ansi kuldalegt um að litast. Við sóttum kartöflur í skúrinn, fórum með þær heim til að pakka þeim í frauðkassa og setja í ísskápana það sem kemst fyrir þar.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive