Þokkalegt veður í dag, frost fram eftir degi, en síðdegis hlýnaði og hvessti. Við komumst ekki í netin, en þar sem spáð er hvassviðri í kvöld strengdum við eina línu yfir húsið, þar sem ein platan virtist vera að gefa sig, hornið hafði losnað.
Það var farið að skyggja, en hér sést hvernig girðingin hallar og að húsið er komið með mittisband. Til stendur að leggja nót yfir allt húsið áður en næsta óveður skellur á.

No comments:
Post a Comment