Friday, June 28, 2019

Föstudagur 28. júní 2019

Frábært veður í dag, hlýtt og sól með köflum. Það hefur rignt hressilega undanfarna daga, alls um 40 mm. Þetta var fín vökvun, byrjaði á léttum úða 2 mm á 2 dögum og svo komu 14 mm og loks 26 í nótt.
Gras og lúpína voru byrjuð að skrælna, en lítið sá á öðrum gróðri. Nú fer væntanlega vöxtur í fullan gang. Við gróðursettum greni, 1/2 bakka í norðanverðan ruðninginn. Nú eru birki, reynir, furur og greni að verða verulega flott sunnanmegin, þegar víðirinn fer að láta á sjá verður þetta greni byrjað að láta til sín taka. Norðanmegin við skurðinn eru aspir að verða að flottum göngum, inn á milli er rein þar sem við settum 1 ahorn frá Danmörku, 2 risafurur og 3 hrossakastaníur fyrir 2 árum. Önnur risafuran og ein af hrossakastaníunum eru dauðar, hinar tóra enn. Bættum inn 3 rauðum birkitrjám. Önnur 3 fóru sunnan við norðurstykkið ásamt 3 hlynum. Að lokum fór eitt rautt birki og 2 álmar í bakkan vestan við akurinn.


Hlíðaramallinn hefur blómstrað vel í sumar og nú eru berin að byrja að þroskast. Ég laumaði 2 risavalmúum þangað í fyrra og er nú að fá þessi glæsilegu blóm. 2 aðrir risavalmúar fóru í stykkið þar sem risagraslaukur, graslaukur, eldliljur og vatnsberar vaxa innan um gullregn og fleira fallegt. 
Hænurnar hafa verpt af kappi undanfarið og eru orðnar hagvanar og mannelskar. Í dag fengu þær áfall, því Kolur gelti á þær og kastaði sér á netið. Vonandi dettur ekki allt varp niður aftur.
Tók græðlinga af geislasóp og setti í bakka með mold og vikri. Tók frekar stóra græðlinga og ekki mjög marga, ca. 30 í bakkanum.  Hann er nú í plastpoka í gróðurhúsinu. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive