Tuesday, June 11, 2019

Þriðjudagur 11. júní 2019

Hiti og sólskin, logn eða hægur vindur. Ekki hefur komið dropi úr lofti í nokkrar vikur.
Byrjaði að setja niður í akurinn, kartöflur voru komnar áður, nú fór hnúðkál og rauðrófur út, mikið þarf að vökva.
Trjágróður lítur enn vel út.

Fallegt blágreni og sitkagreni framan við aspir.  

Hélurifs undir öspunum, er að kæfa grasið. 

Risa graslaukar að byrja að blómstra, þeir eru ekkert allt of fallegir þarna. 

Sama svæði, hér eru stærstu gullregnin.


No comments:

Post a Comment

Blog Archive