Frekar svalt og hvasst í dag, hiti var samt um 11°C.
un 30.06
kl. 17:00 | 12 m/s | 14 m/s / 19 m/s | 13,1 °C | 22,8 °C | 55 % |
Við gróðursettum heilmikið af birki um helgina, 105 í dag og 70 í gær. Megnið af þessu fór í eyðu sem er NA við akurinn og smávegis í stykkið S við grjótnámuna, nú kallað Norðurslétta. Þar vex allt með ágætum, flestar fururnar sem þó voru lélegar í upphafi eru lifandi, þó flestar hafi verið brúnar í vor. Víðir og viðja er lifandi, og allar plönturnar frá því í vor, rifs, reynir o.fl. er í góðum gír, langvarandi þurrkur virðist ekkert hafa að segja.
Við gróðursettum líka einn bakka af sitkagreni A við akurinn, þar var kominn vísir að skjólbelti með birki, víði og öspum.
No comments:
Post a Comment