Gróðursetti 2 glæsitoppa á akrinum, tók burtu dúk sem drap grasið undir sér, búinn að vera þarna í 2 ár og til lítillar prýði. En aðgerðin tókst vel. Setti annan glæsitoppinn austan við jarðarberjabeðin og hinn framan við og milli eplatrjánna. Nokkur stykki af hlíðaramal fóru með, þetta eru litlar plöntur ennþá, en þær vaxa vel, og ég á svo margar að það er ekkert mál að endurnýja þær ef þær lifa ekki.
Hænurnar eru orðnar svo spakar og skemmtilegar, þær tóku fullan þátt í starfinu með mér.
![]() |
| Áhugasamar hænur róta í moldinni. |

![]() |
| Öspin, hálfdauður keisari, búin að fella hana. |
En hvað um það. Við felldum tréð og notuðum greinar og stofn í greinagirðinguna mína.
Hún skýlir risagraslauk og eldliljum, búin að setja nokkur stykki þar, þær vaxa ágætlega og eru byrjaðar að fjölga sér, en ekkert ber á blómum ennþá. Mörg gullregn eru þar í góðu yfirlæti.
Hún skýlir risagraslauk og eldliljum, búin að setja nokkur stykki þar, þær vaxa ágætlega og eru byrjaðar að fjölga sér, en ekkert ber á blómum ennþá. Mörg gullregn eru þar í góðu yfirlæti.




No comments:
Post a Comment