Wednesday, April 29, 2020

Miðvikudagur 29. apríl 2020

Ennþá frábært veður. Það var reyndar næturfrost í Borgarnesi, en samkvæmt mæli var það ekki undir Hafnarfjalli.
Í gær færði ég eitt greni sem Halldór stakk í kringum í fyrra. Þetta var svolítið skondið, því ég færði það um ca 2 m, bara til at stækka rjóðrið í N stykki.
Ég reyndi að stinga upp aspir, en það gat ég alls ekki. Í staðinn stakk ég upp nokkrar blæaspir. Sumar voru rótarlitlar og fóru í frauðkassa, en 2 voru með flotta hnausa, þær fóru í nýræktina mín við veginn.
Svo stakk ég upp reinfang sem er inni á tjaldstæðinu. Skipti því og setti nokkra hnausa í vandræðastykkið milli vegar og akurs. Setti þau nokkuð þétt saman.
Klippti loks nokkrar stórar aspargreinar af 'keisara', þeir fara til Sædísar og ég fæ í staðinn ´hauk' og ´Sæland'.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive