Hlýtt veður, en allhvasst og skúrir.
Við kláruðum að setja aspargræðlingana í G-20 og með hafa farið ca 60 græðlingar af jörvavíði. Svo byrjuðum við að stinga alaskavíði í Bakkann.
Tilraunasáning iðnaðarhamps í gróðurhúsinu.
Fékk 1 kg. af þessu fræi hjá Landstólpa, en veit ekki alveg hvernig ég á að meðhöndla þetta. Eins og sést var hér vandlega talið 1 fræ í hólf, Því var svo þrýst niður og sandi stráð yfir áður en vökvað var. Huldi svo með akryldúk, nú er að sjá hvað spírun tekur langan tíma.

No comments:
Post a Comment