Fínasta veður í dag og líka í gær. Við afrekuðum það í gær að sá gulrótum í 3 ker, vorum búin að undirbúa þau um helgina. Sóttum ferskt hrossatað til Marteins til að setja neðst í kerin og mokuðum mold fram og til baka. Í efri lagið var blandað 1 stórri fötu af sveppamassa og 1 af sandi, en efst fór lag af nýrri mold og þar var fræinu sáð. Akryldúkur strengdur yfir.
Þetta er 10 dögum fyrr en á síðasta ári, en þá var uppskeran ekkert sérstök.
Við færðum ker nr. 10 frá ruðningnum og yfir að körmunum, við ætlum að reyna að byggja brú yfir skurðinn á þessum stað. Brúin kemur þá austan við hænsnahúsið, þar sem við erum mest á ferðinni.
No comments:
Post a Comment