Thursday, April 24, 2014

Fimmtudagur 24. apríl - Sumardagurinn fyrsti

Frábært veður í dag. Sólskin mestan hluta dagsins og hiti fór upp í 15°C. Nánast logn.
  Var hjá Sædísi 12.30-15, hreinsaði illgresi út 3 körmum, við lokuðum þeim aftur með loftun undir gluggahlera og millibili.
  Fórum í Hafnargerði síðdegis og skoðuðum plönturnar. Allt lítur vel út í svona veðri.  Við settum danska hvítlaukinn í ker þar sem voru gulrætur í fyrra. Svo blönduðum við saman skít og sveppamassa og fylltum í 6 fp35 bakka, eigum eftir að setja í fleiri.
  Þá fórum við með afganginn af gulvíðigræðlingunum upp á melinn og stungum þeim, ca. 100 í viðbót við þá sem við fórum með síðast. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive