Wednesday, April 23, 2014

Miðvikudagur 23. apríl - síðasti vetrardagur

Hitabylgja, 14°C, sólskin og logn. Rigningarskúr um kl. 21.
 Fyrsti alvörudagurinn hjá Sædísi, við byrjuðum að opna karma og hreinsa illgresi, höldum áfram á morgun.
  Síðan fórum við í Hafnargerði í stutta stund. Blönduðum skít og sveppamassa við blákorn og bárum 6 fötur af þessu góðgæti upp á melinn við þjóðveginn, þá er nestið tilbúið ef við náum í Hafnarskógarbirki.
 Fórum svo að Borg og klipptum eina fötu af loðvíðigræðlingum sem við ætlum að stinga í fp35 eða fp40 bakka og forrækta úti.
  Hvítlaukurinn er kominn vel á veg, næst á dagskrá er að sá gulrótum í 2 ker í viðbót og undirbúa kartöfluræktun.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive