Gott veður, að mestu sólarlaust, nokkur vindur 9°C.
Í dag var fyrstu matjurtunum sáð. Hvítt hnúðkál 'Konmar' í 3 bakka og rauðrófur í 2 bakka. Þetta er viku seinna en í fyrra, og gert í ljósi reynslunnar, það var hreinlega of kalt þegar við prikluðum hnúðkálinu í karma í fyrra. Það orsakaði vaxtarstopp í nokkrar vikur og svo hlýnaði ekki, svo ekkert af kálinu náði góðri stærð. Það sama má svo sem segja um rauðrófurnar, en við þrjóskumst við og setjum niður í þeirri von að við náum tökum á þessu að lokum.
Við stungum helmingnum af gulvíðigræðlingunum í flagið sunnan við afleggjarann og neðan við þjóðveginn. Þetta voru um það bil 100 græðlingar. Við sáum heilmikið 'Hafnarskógarbirki' frá því í fyrra og það lítur ótrúlega vel út. Það er vel rótfast, hefur ekki losnað í vetur. Það verður spennandi að fylgjast með því í sumar, og við viljum bæta meiru við þar.
Það stóð til að vinna mikið og gróðursetja um páskana, en það kom sannkallað páskahret með snjóbyl og stormi flesta daga. Reyndar kom ekki mikið frost og snjórinn stóð stutt við, en það var ekki spennandi veður til útivistar.
No comments:
Post a Comment