Blíðuveður, 10°C og hæg norðanátt.
Við klipptum vel af runna sem stendur á miðju vinnusvæði, austan við blátopp og gullrifs. Hann sást varla þegar við vorum að byrja, en núna er varla hægt að komast fram hjá honum. Þetta er örugglega gulvíðir, hann er með margar jarðlægar greinar, á meðan annar runni sem líka vex þarna (nær gámunum) villtur vex beint upp. Við settum þessa gulvíðigræðlinga í fötur og ætlum að stinga þeim niður í melinn við þjóðveginn þegar sést móta fyrir hvítum hnúðum, fyrirboða rótarenda.
No comments:
Post a Comment