Blíðskaparveður, hæg austanátt og 9°C, sólarlaust.
Moldin í körmunum er nánast orðin frostlaus. Ég sáði gulrótum í eitt ker, stakk vel upp moldina og bætti smávegis sveppamassa i neðri lögin, en í honum er ágætur hiti. Hvítlaukurinn er alls staðar að gægjast upp, sá danski sem var í pottum inni er kominn lengst. Við settum bakkana út í dag í von um að hægja á þeim. Halldór batt upp 2 hengibirki sem voru sködduð eftir fokið í vetur, þau voru laus á rótinni, en við sáum ekki brotið og vonum að hægt sé að bjarga þeim. Þá bundum við upp eina ösp sem stendur í pytti vestan við akurinn og dinglaði líka laus á rótinni.
Næst fórum við upp í eftri hluta heimagarðsins með 24 aspir sem voru í litlum pottum og skyrdósum, græðlingar sem urðu eftir í fyrra. Til að nýta blöndu af hrossaskít, sveppamassa og blákorni bættum við 6 loðvíði 'Ugga' og 10 birki, smáplöntum, við. Þarna eru nokkur birkitré frá fyrsta eða öðru ári okkar þarna og þau eru að verða verulega falleg.
No comments:
Post a Comment