Fremur kalt í dag, NA7, 6°C, sólarlítið.
Fór í Hafnargerði og pottaði 46 reynitré, fræið úr Laugardal. Fremur fallegar plöntur. Gekk um og skoðaði framvinduna, það er svo kalt að trén eru ekki nærri því fulllaufguð ennþá. Spáð er hlýju á sunnudag, en aftur á að kólna eftir það.
Nokkrar myndir af gróðrinum í dag. Páskaliljurnar ennþá í blóma, en víðir og aspir í grennd eru rétt að byrja að opna brumin. Reynitré sem gróðursett var í fyrra komið aðeins lengra.
No comments:
Post a Comment