Wednesday, June 17, 2015

Miðvikudagur 17. júní 2015

SA7, 10 °C, skúrir og samfelldur rigningarúði síðdegis.
Við mættum í Hafnargerði upp úr hádegi og héldum áfram að setja niður hnúðkál. Í dag var sett niður úr 17 fp54 brettum úr seinni sáningu. Þessar plöntur eru mun minni en þær sem komu úr fyrstu og 2. sáningu, og frekar margar plöntur dauðar eða ónothæfar. Hugsanlega er það vegna þess að ég tók allar sáðplönturnar, ég hefði þurft að hafa þessar minnstu saman í bakka. En megnið af plöntunum eru hraustlegar og dökkgrænar á litinn, enda voru þær vökvaðar með maxicrop tvisvar sinnum í körmunum. Við bárum bæði blákorn og túrbókalk í beðin, nú eru engir draumar um lífræna ræktun, enda skiptir það hugtak engu máli í okkar starfi.  Í dag var sett niður í beð 8.
 Halldór tók 16 aspir sem stóðu á beði á akrinum og gróðursetti austanmegin við akurinn. Þar settum við niður allmargar furur fyrir 2 árum, margar þeirra eru steindauðar. Smám saman erum við farin að gróðursetja meira saman í grúppur, einfaldar raðir sem voru mikið gerðar fyrstu árin eru á undanhaldi, það er of erfitt fyrir stök tré að vaxa upp í næðingi eins og þarna getur orðið.
  Gróðurinn er ótrúlega seinn, og margar lágvaxnar plöntur hafa farið illa. Það er í raun merkilegt að stærstu aspir og birki eru heilar upp í topp. Reynitré eru líka að koma vel út í ár.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive