Wednesday, June 10, 2015

Miðvikudagur 10. júní 2015

Ágætt veður í dag, eftir hvassviðri og mikla úrkomu sl. sólarhring. Í dag var 11°C og sólskin síðdegis.
Við færðum askinn sem stóð vestan við akurinn og var ágætlega fallegur í fyrra, nú er hann ekkert farinn að laufgast. Hann fór í norðurstykkið þar sem er meira skjól, og í staðinn settum við silfurreyni.
Ég pottaði því elri sem ég átti eftir í bakka, það voru um 70 plöntur sem fóru í 7x7x8 potta. Halldór bar á tré í norðurstykki á meðan, með því að gera holur og láta áburð í þær.
5 bakkar af brekkuvíði komnir í Hafnargerði frá Mógilsá.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive