Ágætt veður í dag, 14°C og sólríkt, nokkuð hvasst, eða NA8/17 m.
Við sóttum fyrstu prikluðu hnúðkálin til Sædísar í dag og settum niður í 2 beð. Breiddum svo akryldúk yfir. Það hvessti heldur betur undir kvöld og spáð er rigningu á morgun, það verður spennandi að sjá hvort dúkurinn helst yfir í heila nótt.
| Dúkurinn kominn yfir fyrstu tvö beðin (stóð af sér fyrsta storminn). | Í baksýn sést að aspir eru að verða laufgaðar í skjólbeltinu. |
| Hér sjást hnúðkálssáningar gægjast upp úr moldinni. |
No comments:
Post a Comment