Hitabylgja, hiti allt að 20°C yfir hádaginn, sólskin og logn. Það var brjálað að gera hjá Sædísi, en Halldór tætti akurinn báða dagana. Það var kominn talsverður grasvöxtur og illgresi, einkum í þeim beðum sem ekki voru í notkun í fyrra og verða það heldur ekki núna.
Í dag kíkti ég aðeins á gömlu jarðarberjaplönturnar. Ég hélt að þær væru ónýtar, en sá að margar eru að koma með blóm svo þær fá að lifa í sumar. Skipti um mold á þeim og setti aftur í karm. (6.7.15: Tóku strax mikinn vaxtarkipp).
Hugmyndin er að fá svo Glímu hjá Sædísi og koma þeim fyrir úti á akri þar sem þær fá að vera í friði í nokkur ár.
No comments:
Post a Comment