Saturday, May 21, 2016

Laugardagur 21. maí 2016

Gott veður, þó ekki mjög hlýtt. Breytileg átt, 5-9m og 9°C. Mjög fínt í skjóli.
Haraldur kom með tvö hlöss af mold, á morgun á að klára grunn fyrir gróðurhúsið. Búið er að mæla út staðsetningu, og ryðja frá því sem var fyrir.
 Spergilkálið lítur sannarlega illa út. Þegar ég opnaði karmana voru þeir fullir af svörtu flugunni, hún hvarf eftir að við loftuðum vel. Hnúðkálið er skárra, en þó eru bakkarnir dálítið mismunandi, ég færði þá aðeins til svo birtan yrði jafnari.

Ég sáði í dag spergilkáli í 2 fp54, beint í hólfin. Breiddi akryldúk yfir og vökvaði vel.  Nú er að sjá  hvort eitthvað af þessu verður að káli.
Þá sáði ég birki í einn bakka. Eitt fræ af purpurahlyni spíraði, búin að setja plöntuna í pott, flugurnar hafa eitthvað átt við hana líka, vonandi sleppur hún. 

Í gær komu 4 lyngrósir frá GÍ, þær fóru beint í potta.
R. (Lauffellin-Azalea) - Aamurusko
R. (Sígræn) - P.M.A.Tigerstedt
R. (Sígræn) - St. Michael/Mikkeli
R. (Sígræn) - Hellikki

 Svo pottaði ég um það bil 15 sýrenur, tók græðlinga hjá Sædísi í fyrra.






No comments:

Post a Comment

Blog Archive