Finasta veður, aðeins er farið að hlýna. Í dag var hæg NV átt og 9°C, sólskin meiri hluta dagsins.
Haraldur kom og gróf grunn að gróðurhúsi og kom fyrir steinum sem munu festa húsið niður.
Ég sáði steinbjörk og rauðu birki frá trjáklúbbnum og líka snæþyrni, fræ sem Hilmar aðstoðarskólastjóri GrB fékk sent frá Noregi.
Allt að gerast, karlarnir mæla hæðina á steinunum.

No comments:
Post a Comment