Við afköstuðum heilum helling í dag. Fyrst og fremst vorum við að færa ker og karma sem stóðu umhverfis bláa gáminn, en flytja á hann um næstu helgi. Það fór hellingur af mold í jarðarberjakarma, en mold sem engar kartöflur hafa verið í fór í ker. Halldór færði vörubrettin og búið er að koma þeim fyrir. Þá kláruðum við jarðarberjabeðið, karm nr. 2. Ég stakk upp og við settum rætkunardúk yfir moldina og loks voru jarðarberin gróðursett. Helmingurinn var frá Sædísi, en hinn helmingurinn græðlingar sem ég bjó til í fyrrahaust, þeir eru mjög litlir.
Ég opnaði karmana með hnúðkáli og spergilkáli, tók akryldúkinn af og vökvaði. Hnúðkálið lítur mjög vel út, spergilkálið ekki, veit ekki alveg hvað amar að því.
| Hnúðkálið í góðum gír! |
No comments:
Post a Comment