Við afköstuðum miklu þessa helgi. Sóttum skít í kerru og settum í 11/2 karm. Svo priklaði ég hnúðkál í 2 karma og brokkólí í 1/2 (ekki alveg fullan). Moldarblandan var 2 fötur af sveppamassa í múrbala af mold, og í þetta sinn bættum við blákorni saman við. Allt í allt voru þetta um 1850 hnúðkál og um 240 brokkólí, þau fóru í litla potta (7x7x6) og í jógúrtdósir. Lok sett yfir og akryldúkur, nú þarf kálið að fá frið í nokkra daga. Ekki er spáð neinni sérstakri hlýnun næstu viku, en trjágróðurinn er allur að taka vel við sér.
| Blátoppurinn fyrstur eins og vera ber. |
Þá settum við hvítlaukinn í ker, búin áður að setja skít í botninn. Þessi laukur er sá sem Anna Hansen kom með frá Kaupmannahöfn sl. haust, frá Hvidløg og vin. Okkar eigið útsæði er mest allt dautt, það finnst mér mjög sérkennilegt. Við áttum rétt í eitt ker.
| Svartþröstur á grein í bakgarðinum við Austurholt. |
No comments:
Post a Comment