Tuesday, May 31, 2016

Þriðjudagur 31. maí 2016

Brjálað veður í dag, SA16-23 og 10°C. Skúrir.
Í gær var dásamlegt veður og ég byrjaði að setja niður grænmeti í gegnum hlúplast. Þetta er reyndar frekar dýr aðgerð, en vegna þess hvað arfinn dafnar vel undir akryldúknum ákváðum við að reyna.  Það gekk mjög vel, en ég er hrædd um að plönturnar láti á sjá í rokinu í dag.




Svo byrjaði ég að setja niður kartöflur, notaði plöntustaf til að gera holur, það kom ágætlega út. Við reyndum nýja aðferð, skiptum kartöflubeðinu í 3 rásir, upphækkaðar.

Allur gróður er kominn langt, laufgun er næstum því heilum mánuði fyrr en árið 2015.  Jarðarberin eru í þvílíkum vexti, það mætti halda að þessi jarðvegur henti þeim. Ég hef lokin áfram á körmunum, hef bara op svo hunangsflugurnar komist inn. Reyndar er óvenju mikið af þeim núna, mér finnst þær líka óvenjulega snemma.


Það sést svo sem ekkert mjög vel á þessari mynd, en elrið er með þvílíka rekla núna og laufgast mjög snemma.
Og páskaliljurnar blómstra.
Ég notaði daginn til að fara í Skallagríms garðinn og fékk hnausa af nokkrum fjölæringum hjá Steinku, venusvagn (2 gerðir), hófsóley, bleika lúpínu og 2-3 ónafngreindar plöntur. Kom þeim fyrir í skjóli og reyni að gróðursetja fljótlega.




No comments:

Post a Comment

Blog Archive