Friday, June 17, 2016

Föstudagur 17. júní 2016

Fínt veður í dag, A1, 10°C, skýjað. Í nótt rigndi og á morgun er líka spáð rigningu, svo nú átti að gróðursetja. Það varð reyndar ekki eins mikið og til stóð, en við settum 15 birki austan við vinnusvæðið, þar voru settir aspargræðlingar fyrir 2 árum og í fyrra greni. Hvorutveggja lítur mjög vel út. Svo settum við 3 garðasýrenur (rótarskot frá Gúnda) í bakkan vestan við akurinn, þar vex úlfareynir og viðja mjög vel.  Ég setti niður hófsóley við lækinn og 3 önnur blóm úr Skalló í svæðið sunnan við bílastæðið. Allur gróður lítur ótrúlega vel út núna.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive