Rigning fyrri hluta dags en síðdegis stytti upp um tíma, þá var logn og 11°C. Gróðurinn sýnir allt sitt besta. Þrösturinn situr á eggjum í hreiðrinu, ég var ekkert að trufla hann.
Halldór klippti víði í skjólbeltinu, hann er farinn að rekast í grenið. Ég fór upp á hólinn og klippti kalsprota af 'Ugga' og af viðjunni þar upp. Þetta eru kalsprotar síðan lægðaveturinn mikla.
Loks fór ég með 29 sitkaelri og gróðursetti uppi við veg ásamt einum skrítnum víði í potti og 2 hálfdauðu blárifsi. Lokst setti ég 5 hnausa af ramfangi, endalaust er verið að grisja úr heimagarðinum hér í Austurholti, en ramfangið skríður víða um garðinn. Ég setti það inn í lúpínubreiður og vona að það dafni þar.
Á sléttunni lítur birki og brekkuvíðir vel út, fer bráðum að sjást.
No comments:
Post a Comment