Gott veður og hlýtt í dag, sólarlítið. Hiti fór upp í 20°C um miðjan daginn og var 15°C um kl. 20. Nánast logn allan daginn.
Halldór setti niður 15 birki og 55 jörvavíði, hann heldur áfram að þétta raðirnar upp og austur af vinnusvæði. Ég fór síðdegis og dáðist að öllum gróðrinum, svo byrjaði ég á furulundi sem verður norður af akrinum, neðan við brekkkuna. Þar er malarflag sem ekkert er í. Setti niður 10 skógarfurur.
No comments:
Post a Comment