Mikil rigning í dag, en hlýtt og milt.
Við vorum nokkra stund í Hafnargerði. Halldór klippti kalsprota og vann aðeins í gróðurhúsinu, smiðurinn er enn ekki kominn til að klára og það verður einhver bið eftir honum. Hugsanlega getum við klárað þetta sjálf.
Ég blandaði mold inni í skýlinu, það munar miklu að geta verið í skjýlinu, þó það sé ekki lokað, enda mjög sjaldan vestanátt. Ég kláraði að prikla ilmreyni, þetta urðu 155 mjög fallegar plöntur, þar af fóru 35 í fp35 bakka. Svo priklaði ég logalauf, 6 vænar í 13cm potta og restina í 9x9x10, þeir voru að vaxa, en með litlar rætur. 1-2 í hvern pott. Hingað til hefur logalauf vaxið mjög vel hjá mér, svo ég reikna með því að þetta komi til.
Þrösturinn haggast varla af eggjunum sínum. Í gær var gola og rigning og okkur fannst þetta frekar kuldalegt hjá honum. Því færðum við nokkra stóra þini nær, nú er hann í betra skjóli. Þetta var hann bara ánægður með, allavega fór hann ekki neitt. Ég prófaði að færa honum ánamaðka, ég hef reyndar ekki séð hann éta þá, en þeir hverfa fljótt.
No comments:
Post a Comment