Wednesday, June 22, 2016

Miðvikudagur 22. júlí 2016

Frábært veður, sólskin 15°C og hæg breytileg átt.
Var hjá Sædísi mestan hluta dagsins eins og í gær, en hin árlega vinnuferð Sædísar í Búðardal var núna. Fór í stutta stund í Hafnargerði eftir vinnu og eins á mánudaginn. Gróðursetti 19 furur, 12 stafafurur og 7  skógarfurur.  Nýi furulundurinn er norðarlega í landinu, neðan við brekku þar sem við gróðursettum greni og furur fyrsta árið. Þessi tré hafa vaxið talsvert en kól illa veturinn 14-15, eins og mörg önnur tré. Nú eru þau í góðum vexti. Allt er í mjög góðum vexti, bæði greni og aspir eru komin með heilmikinn ársvöxt, enda var vorið gott og nú hefur verið rakt og hlýtt allan júnímánuð.

Reynitré sem vex eins og runni vinstra megin og hægra megin blóðrifs með bleikum blómum.

Vinstra megin á myndinni er Caragana eða baunakergi og hægra megin er gamla lindifuran sem við fluttum úr Svínadal. Ekki hefur hún hækkað mikið, en alltaf er talsverður blaðvöxtur. 


No comments:

Post a Comment

Blog Archive