Rok og rigning í dag. Frekar leiðinlegt veður alla síðastliðna viku, en þó fint í gær, sunnudag. Þá voru Lára og Ingibjög með okkur í Hafnargerði hluta úr degi. Við náðum að setja niður 500 græðlinga af hreggstaðavíði, vorum búin að geyma þá um tíma.
 |
| Fyrstu radísurnar úr gróðurhúsinu. |
Radísurnar vor dásamlegar, en ekki fleiri en þetta. Notaði gamalt fræ, annaðhvort var það ónýtt að mestu, eða þá að mýsnar hafa étið það, en mikill músaskítur var ofan á akryldúknum fyrstu dagana eftir að sáð var fyrir gulrótum og radísum.
Fórum sl. fimmtudag í Þöll og keyptum 5 fp40 bakka af sitkagreni.
No comments:
Post a Comment