Thursday, May 10, 2018

Fimmtudagur 10. maí 2018

Fínt veður í dag, 10°C og nánast logn, skúrir annað slagið.
Okkur varð mikið úr verki í dag. Við hökkuðum slatta af mold og ég kláraði að prikla rauðrófur. Það varð fullmikið í bökkunum, en ég notaði eingöngu bestu plönturnar.
Tegundir:

  1. Detroit dark red, 2x hvítir bakkar (fp54) og 3xbláir með litlum pottum, 22 í bakka = 174. 
  2. Gourmet blend 9xbláir með litlum pottum 198
  3. Zeppo F1 4xhvítir (fp54) = 216

Við sóttum skít í hesthúsin, og Halldór mokaði milli kerja. Settum niður það sem eftir var af útsæðinu í 3 ker (31, 33 og 13) Þá voru nokkrar lélegar kartöflur eftir, í staðinn fyrir að henda þeim settum við þær í ker 10. Þær voru ýmist með mjög langar spírur, eða spírurnar voru farnar að mygla, eða hvorutveggja.  Allt rauðar 'Hárekur'.

Þetta er fallega útsæðið.
Úti í körmunum er allt að lifna við. Meðal annars fann ég 2 plöntur af Tilia tomentosa. Er ekki frá því að meira sé að spíra í bakkanum, þær hafa þurft að fá kuldatímabil í vetur.
(Þegar betur er að gáð held ég að miðarnir hljóti að hafa víxlast, þetta getur ekki verið Lind, hlýtur að vera ameríkuyllir; Sambucus canadensis. )

No comments:

Post a Comment

Blog Archive