Monday, May 21, 2018

Mánudagur 21. maí 2018 - 2. hvítasunnudagur

Gott veður í dag, loksins er farið að hlýna.  Hæg N og 6°C,  hlýtt niðri við jörð. Sól annað slagið.
Við keyptum heilmikið af plöntum í Þöll. Sitkagreni 5 fp40, lerki 'Hrym' fp 24 og gráelri fp 35.  Í dag gróðursettum við 'Hrym' uppi á sandinn ásamt 2 plöntum sem við áttum í pottum. Gráelrið fór syðst í landið (næst girðingunni að landi Svenju). Þar settum við 20 stykki og hin 20 nyrst, þangað fóru 15 til að þétta gisinn lund með öspum, birki, reynitrjám og selju.
Eitt efnilegt gráelri. 

Lundurinn, eftir gróðursetningu. 

Svo fór 1 bakki af sitkagreni í röð upp með læknum þar sem við settum niður reynitré og birki í fyrra. Einar 10-12 plöntur fóru efst í brekkuna. Þar eru 3 gömul reynitré sem potast upp í rólegheitum.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive