Wednesday, May 30, 2018

Miðvikudagur 30. maí 2018

Ágætt veður í dag, en sólarlítið framan af.  11°C og hægur vindur. Ég var hjá Sædísi fram til kl. 3, en það var ekkert mjög mikið að gera. Fer væntanlega að aukast, spáð er góðu veðri næstu daga.
Við keyrðum skít í ker í gær, og í dag setti ég rauðrófur frá Sædísi í eitt þeirra.  Hún á ekkert allt of mikið af rauðrófum, tímdi varla að setja þær niður, var samt búin að biðja mig að gróðursetja fyrir sig.
  Við munum setja okkar rauðrófur í 2-3 ker. Ég sáði rófum í lítið fiskiker, þetta er nú í seinna lagi, en ekkert er ómögulegt. Í gær sáði ég birki 'Lækur' í enn einn bakka. Í þetta sinn sáði ég í 'sveitamold', fræið spírar ekkert of vel í sáðmoldinni. Svo pottaði ég upp rauðrifsi og sýrenum, flottar plöntur.
Allt lítur vel út hjá okkur og smám saman er trjágróður að laufgast.

No comments:

Post a Comment

Blog Archive