Monday, May 28, 2018

Mánudagur 28. maí 2018

Gott veður í dag og engin rigning.
Við gróðursettum í stykkið nálægt hliðinu. Þar hafa nokkur birkitré spjarað sig vel og við bættum við 31 birki, 9 reynitrjám, 3 rifsberjum og 1 blæösp. Þá fór ég með nokkra óskilgreinda víði upp á sanda, í leiðinni gróðursetti ég aftur nokkrar plöntur sem voru gróðursettar 2016.
Stykkið við hliðið, normal stærð. 

Stykkið við hliðið, með súm.




No comments:

Post a Comment

Blog Archive