Thursday, April 23, 2020

Fimmtudagur 23. apríl 2020 - Sumardagurinn fyrsti

Fim 23.04
kl. 07:00
Suð-suð-austan 3 m/sm/s  /  5 m/s5,2 °C4 °C76 %
Það lítur út fyrir gott veður í dag. Það hefur verið hlýtt alla vikuna og mikil rigning, frost fer hratt úr jörðu.
Sl. sunnudag sótti ég 5 hænur til Gunna á Fáskrúðarbakka. Veronika var búin að setja þær í 3 kassa, svo ég þurfti eiginlega ekki að fara út úr bílnum (Vegna Covit-19). Svo var brunað með hænurnar í Hafnargerði. Gömlu hænurnar voru plataðar út í garð og lokaðar úti og þær nýju settar inn. Það tókst ekki betur en svo að 2 sluppu frá okkur og það var engin leið að ná þeim. Við létum þær á endanum eiga sig, opnuðum inn í girðinguna á gamla hænsnahúsinu og settum mat og vatn þangað inn. Þær voru úti í 3 daga, í gær náðum við þeim loksins. Önnur fór inn í gamla kofann og þar gat ég króað hana af, hin fór inn í girðingu við nýja húsið og var króuð af þar. Það var skemmtilegt hvað þær voru hressar eftir þriggja daga tilveru sem frjálsar hænur, en þær voru ekki sáttar við að vera settar inn. 
Hér sjást 2 strokuhænur, þær eru að reyna að komast inn til hinna, en vildu þó ekki láta ná sér. Þetta er á 2. degi.
Eftir að búið var að ná hænunum stækkuðum við girðingarhólfið um rúmlega helming. Í upphafi voru dálitlar stympingar milli hópanna, sem helst voru aðskildir. Það tók þó ekki marga daga að allir urðu vinir. Nú koma 2-4 egg á dag. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive