Thursday, April 9, 2020

Fimmtudagur 9. apríl 2020 - Skírdagur

Frábært veður í dag, logn og hlýindi.
Fim 09.04
kl. 14:00
Norðan 4 m/sm/s  /  6 m/s2,8 °C5,6 °C80 %
Við opnuðum hænsnahúsið og dömurnar voru ekki lengi að hugsa sig um og fóru út að skoða garðinn sinn. Ég fór með "heitan brauðrétt", brauð úr frystinum bleytt í volgu vatni. Svo fengu þær svolítið krabbakjöt.  Þær fóru nokkrum sinnum inn og út aftur, þetta er heilmikil tilbreyting fyrir þær.
Ég mokaði sagi upp úr keri í gróðurhúsinu og ók því út á litlar trjáplöntur, sem erfitt er að finna og varasamt að slá í kringum þegar grasið er orðið hátt.
Reyniber sem ég sáði í haust eru farin að spíra heilmikið

No comments:

Post a Comment

Blog Archive