Thursday, June 17, 2021

Fimmtudagur 17. júní 2021

 Þokkalegt veður, N5 og 8°C, smáskúrir. 

Við gróðursettum einn bakka af sitkagreni í NA hlutann, þar sem við settum aspargræðlinga í vor, lítið annað er þar að finna. 




Leit á færeyjarifsið, þetta bleika. Það stendur sig mun betur en það rauða, sem allt er meira og minna kalið eftir veturinn, þó ætla flest þeirra að koma upp aftur frá rót. 

Ég priklaði birki úr seinni sáningunni, hún er að koma mun betur út en hin fyrri. Einn bakki í dag og einn bakki í gær, það virtist í góðu lagi með það. 

Priklaði líka nokkur reynitré (9) af Tágareyni (Sorbus tenuis). Fékk fræ frá Eggert Aðalsteinssyni, sem fékk það hjá McAlistair, ef ég hef skilið þetta rétt. 

Plantaði í 4 ker, hnúðkál í 2 og brokkolí í 2. Af húsdýrahaldi er það helst að frétta að Kroppa ungaði út 2 ungum, nokkrum dögum á undan áætlun. Annar hefur dottið úr varpkassanum og dáið, hinn var mjög sprækur, en Kroppa skipti sér ekkert af eggjunum sem eftir voru. Við sóttum þau undir kvöld og reyndum að hita þau inni í vinnuskúrnum. Þá voru þau orðin köld, svo það er nokkuð ólíklegt að þetta takist. 

Mýsnar standa á beit í vítamínum. 

No comments:

Post a Comment

Blog Archive