Friday, June 11, 2021

Föstudagur 11. júní 2021

 Í dag er skýjað og 8°C.  Síðastliðna daga hefur ringt eins og hellt úr fötu og flest tré eru laufguð, en það er alveg nýskeð.  Hitinn fer varla yfir 10°C. 

Við mældum aspirnar í vikunni: áætlum að þær séu 5.5 m, miðað við að prikið er 5 m. 



Við fórum eina ferð á Miðhraun og gróðursettum greni og reynitré í gamla skjólbeltið. Förum fljótlega og gerum 150 m belti í viðbót. 

Þá fórum við á Klaustur. Við fengum hjá Lassa græðlinga af geitaskeggi og rótarskot af gráelri og af dögglingskvisti. Stærsta rótarskotið af gráelrinu fór í bakkann meðfram veginum. Því fylgdi skriðsóley og etv. eitthvað annað, við ákváðum að taka ekki hnausinn í sundur. 

Hin rótarskotin fara í uppeldi fyrst um sinn. 

Heimsóttum eitt af stærstu trjám landsins: 


Sitkagreni, mældist hæst 2014. 



Sitkagreni

No comments:

Post a Comment

Blog Archive