Rok í dag og smávegis rigning. Sumarið ætlar ekki alveg að koma. Við tættum akurinn í gær, en hann er ennþá mjög blautur.
Hænsnahaldi er um það bil að ljúka hjá okkur. Minkurinn komst fyrst í gamla kofann og drap Kroppu, unginn var þá orðinn aleinn og munaðarlaus. Við tókum hann inn í vinnuskúrinn og þar þrífst hann ágætlega. Hins vegar var minkurinn ekki hættur. Daginn eftir fór hann í hænsnagirðinguna og drap 9 hænur. 3 voru eftir og frekar laskaðar, en virtust þó ætla að jafna sig. Bogga var best á sig komin og var hin kátasta. Við gerðum okkar besta til að laga girðinguna og loka fyrir öll göt. En næstu nótt tók minkurinn 2 svo Bogga var ein eftir. Hún undi sér ágætlega í 3 daga. Í gærkvöldi var Bogga lokuð inni, vegna veðurs sem var væntanlegt, og líka til að vernda hana. En í dag, þegar ég kom að húsinu var minkurinn þar inni og Bogga dauð. Það er svolítið óljóst hvort minkurinn slapp og þá hvaða leið hann fór, en við sáum hann ekki fara. Reyndum að bjóða honum músaeitur og tókum vatn og mat í burtu.
Við reynum að koma unga litla (Fjallkonunni) í fóstur ef það er hæna, ef það er hani verður erfitt að finna honum heimili. Áður en við reynum aftur við hænsnarækt þarf að gera endurbætur á kofanum og girðingunum, en við ætlum að taka okkur frí í amk. eitt át.
No comments:
Post a Comment