Nokkuð kalt í dag, ca 7°C og kaldur norðanvindur en sólríkt.
Mýs hafa gert sig mjög heimakomnar hjá okkur í langan tíma og nú er músastofninn greinilega orðinn mjög stór. Hvar sem við lyftum pottum eða lokum skjótast mýs til og frá, sjáum þær líka brokka frá hænsnahúsinu með brauðmola. Þær virðast líka komast í matardallana, allavega tæmast þær hratt. Þráinn útvegaði okkur D-vítamín fyrir mýs og 2 fötur. Önnur fór í gróðurhúsið og hin undir brúna.
Ég klippti niður rós sem ræktuð er af fræi frá Mógilsá. Hún vex slatta á hverju sumri en kelur svo niður og eftir standa ljótar og mjög þyrnóttar greinar, en rósin byrjar upp á nýtt. Hún hefur einu sinni sýnt eitt eða tvö blóm, en svo ekki meir. Hins vegar eru rótarskot út um allt. Ef ekki koma blóm í sumar verður að reyna að útrýma henni, allavega koma henni eitthvað annað þar sem hún má fjölga sér.
Tók eina mynd
![]() |
| Júní 2021 |
| Mars 1016 |

No comments:
Post a Comment